Sýnir færslur með efnisorðinu Details. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Details. Sýna allar færslur

laugardagur, 25. október 2014

TERRARIUM


Mig dreymir um að eignast svokallað terrarium eða plöntuhengi.
Ég fann þessa fullkomnun á etsy.com 
 











Ég verð að játa að það er ekki ein planta á heimilinu mínu. Planið er að bæta úr því og ein svona dásemd mundi kippa því í liðinn á svipstundu. 
 
Þetta fer klárlega á óskalistann. Fæst hér. 

-KAV


mánudagur, 25. ágúst 2014

BLACK N' WHITE





 Ég kíkti aðeins út á föstudaginn og tók nokkrar outfit myndir á símann áður en ég fór út úr húsi.

Bolur & hálsmen: Nasygal // Leður stuttbuxur: Vintage búð í Svíþjóð // Kimono: Aftur // Skór: Bianco.

-KAV

miðvikudagur, 20. ágúst 2014

DAYDREAMING






Ó lord hvað mig langar í þetta fallega hálsmen...
Ég rakst á það á instagramminu hennar Carissu Alvarado sjá hér.

Það heitir Moon gorget necklace og er fáanlegt á bingbangnyc.com

Ég mun þó aðeins láta mig dreyma um það því ég hef margt annað við 35. þúsund kr. að gera...
Langar t.d. rosalega mikið í nýtt sófaborð og ætla að koma með sófaborðspælingar í næsta bloggi.

Þangað til næst
-KAV

mánudagur, 18. ágúst 2014

BOYFRIEND JACKET




Ég stalst í leðurjakkan hans Bjarna fyrir stuttu. Mér hefur alltaf fundist hann svo flottur en aldrei dottið í hug að máta. Hann var keyptur í second hand búð í Köben, episode. Mig minnir að þessi jakki sé endurunninn úr gömlun leðurbuxum.

Ég er með nýtt hálsmen sem kom með í pakkanum frá Nastygal. Það sést þó ekkert sérstaklega vel. Fæst hér.

Ég mun klárlega fá að stela þessum aftur við tækifæri.
Prufið að kíkja í fataskápinn hjá kæró!


(Já ég veit, ég er alltaf með höndina í hárinu)

-KAV



fimmtudagur, 14. ágúst 2014

SUMMER OUTFIT




Hér er dressið við nýju fínu skóna sem ég lofaði að posta í dag.
Veðrið í gær var alveg yndislegt. Ég vann stuttan vinnudag og skellti mér síðan út í sólina.

Ég er búin að taka ástfóstri við þessa bóma flík sem ég veit ekki hvort ég eigi að kalla kimono eða kjól. Réttast væri kannski að segja að þetta sé kjóll notaður sem kimono?
En hvað um það, falleg er flíkin og fínt að skella sér í hana á sólríkum dögum sem þessum.

Outfit: Kjóll: Keyptur á fatamarkaði á prikinu // Belti og kimono: Nostalgía // Sólgleraugu: Le specs // Skór: Bianco

-KAV

miðvikudagur, 13. ágúst 2014

NEW SHOES







Ó þessir skór eru svo bilaðslega flottir að ég bara varð að eignast þá.
Liturinn finnst mér mest heillandi og svo er ég rosalega mikið fyrir grófa skó með miklum platform.
Þessir uppfylla allar mínar kröfur og ég er viss um að þessir verði mikið notaðir í haust.

Mér fannst þeir koma einstaklega vel út berleggja í sólinni í dag. Þeir eru líka virkilega þægilegir enda úr ekta leðri að innan.
(Oufit myndina set ég inn á morgun)

Þessar elskur fékk ég í Bianco kringlunni.
Það voru fullt af fallegum skóm að koma fyrir haustið, sjá nánar á síðunni þeirra hér.
Ég mæli með því að gera sér ferð í kringluna og kíkja á úrvalið.

-KAV

laugardagur, 2. ágúst 2014

OUTFIT








Ég ásamt góðri vinkonu ákváðum að dressa okkur upp og taka smá fimmtudags bæjarrölt.
Við eyddum meirihluta kvöldsins á Nora Magasin þar sem við gátum setið úti langt frameftir kvöldi í þessu ljúfa veðri.

Ég klæddist nýjum kimono sem ég fékk á útsölunni í Nostalgíu, skóm frá 67, uppáhalds jakkanum mínum úr Weekday og í buxum úr Monki.

Njótið helgarinnar, það ætla ég svo sannarlega að gera. 
Ég á flug vestur á Mýrarboltann seinna í dag og hlakka mikið til!

-KAV

laugardagur, 26. júlí 2014

ALL BLACK VINTAGE








Þessa þrjá hluti fékk ég í vintage búðum í Svíþjóð í sumar.
Meira um þessar búðir og Stokkhólm shopping tips kemur í færslu á morgun.

-KAV

mánudagur, 19. maí 2014

SHORT

Ég ákvað að breyta aðeins til og klippa hárið á mér stutt.
Ég var komin með leið á síða hárinu og það var orðið nokkuð slitið og lúið eftir síðustu tvö permanett. Ég held ég fari ekki aftur í bráð enda er hárið á mér búið að lýsast um tvo tóna og skemmast töluvert. Svo ég held það sé komið gott af krullum í bili.

Ég er rosalega ánægð með þessa klippingu. Það var nokkuð stórt skref að láta allt fjúka en svakalegur léttir í leiðinni. Þið hljótið að þekkja þetta þið sem eruð vanar að vera alltaf með sítt hár.

Hér er svo útkoman:


Ég er nokkuð virk á instagram fyrir ykkur sem viljið fylgjast með - @kolavig svo auðvitað followa @keenbeanblog

-KAV

þriðjudagur, 14. janúar 2014

NEW IN; KIMONO

Ég fékk þessa draumaflík í jólagjöf frá Bjarna mínum.
Mig hefur lengi langað í þennan kimono úr aftur og loksins varð hann minn!
Hann er alveg svartur og passar þar af leiðandi við allt. Ég get bæði notað flíkina fínt eða hversdags. Þeir fást í tveimur síddum og minn flokkast undir  síðari týpuna.


image
image

image

Þær eru með glæsilegt úrval af kimonoum í aftur og blómamunstruðu kimonoin eru alls ekki síðri. Væri sko alveg til í að eiga þannig til skiptanna :)

-KAV

föstudagur, 3. janúar 2014

NEW IN ; SKULL NECKLACE

image

image

Í einum jólapakkanum leyndist meðal annars þetta bronsaða hauskúpu hálsmen úr Aftur. Kæró var svo sætur að gefa mér menið ásamt kimono úr sömu búð. Ég er ekkert smá ánægð með minn mann! Það borgar sig greinilega að setja óskalistann á netið.

-KAV

fimmtudagur, 11. apríl 2013

SKULL NECKLACE





Hitti á mjög skemmtilega búð í Ubud í gær. Allt þar inni er handskorið úr beinum eða hornum og allt sjúklega flott og vel gert!
Ég gat ekki annað en splæst í þessar hauskúpur fyrir ofan. Við Bjarni fengum okkur sitthvora svarta úr buffalo horni og svo langaði mig líka í eina litla hvíta:)
Hefði ekkert verið á móti útskorna buffaloinum en bakpokaferðalag býður ekki alveg uppá það!

-KAV


miðvikudagur, 10. apríl 2013

CHICAGO BULLS



Chicago Bulls húfa komin á hausinn og hefur ekki farið af honum síðan ég keypti hana:)
Sólin á bali er einfaldlega ekki boðleg fyrir bera hausa!
Bið að heilsa frá Balí,
-KAV

þriðjudagur, 26. mars 2013

NERDY



Nerdy í dag: Skyrta: Gina Tricot // Peysa: Fatamarkaður á kex // Gleraugu: RayBan

-KAV

laugardagur, 2. mars 2013

Dark Saturday



Necklace 1: Aldo // Cross: Lf stores NYC

Enjoy your Saturday folks!
-KAV